Fag-Mennskan mín!!

Það er ýmislegt sem ég hef tekið með mér úr sálgæslunáminu en sumt af því er sterkara í vitundinni en annað og þessi pistill er afurð af þeim yndislega tíma sem ég átti þar. Ég hef alltaf verið andlega sinnuð og hef leyft mér að viðurkenna það fyrir sjálfri mér og öðrum. Ég hef meðvitað verið að fara úr því hlutverki sem ég tel að aðrir vilji að ég leiki og í það hlutverk sem ég er sönnust í – sem er ég sjálf. Ég er ekki fullkomin manneskja sem gerir aðra manneskju fullkomna – ég er brotin manneskja sem get vonandi gefið annarri manneskju ljós. Brot lækna brot – ekki hin fullkomna fyrirmynd. Sannleikurinn er sá að það er brotalöm í okkur öllum og sannur kærleikur gagnvart sjálfum sér er að sjá sig eins og maður er því brestirnir geta líka hjálpað okkur að lifa af erfiða tíma þrátt fyrir að snúast upp í andhverfu sína á öðrum tímum. Brestirnir okkar víkja ekki endilega þrátt fyrir að við séum meðvituð en þeir mýkjast jafnvel með tímanum og þá sérstaklega þegar við viðurkennum þá og hættum að dæma okkur fyrir að vera ekki alltaf með lífið algjörlega á hreinu. Hver er þannig?? Það er munur hvort við förum lífið á hnefanum eða opnum lófann fyrir lífinu, með öllum þeim kostum og göllum sem því fylgir. Þú mátt ekki vera svona viðkvæm Anna Lóa – hef ég oft fengið að heyra og í langan tíma fannst mér þetta brestur sem ég þyrfti að taka á. Já ég þyrfti að herða mig upp og hef oft barið sjálfa mig niður fyrir að vera svona mikil tilfinningavera. En eftir að ég áttaði mig á að þarna fer líka minn besti kostur fylgdi sátt í kjölfarið og tel að ég eigi auðvelt með að vinna að því sem ég geri í dag er vegna þess að ég er mikil tilfinningavera og leyfi mér að vera það. Ég er ekki með svör við öllu – hvorki fyrir sjálfa mig né aðra – en ég reyni eftir fremsta megni að leyfa mér að vaxa inn í fagmennskuna mína með sjálfa mig í forgrunni. Í mínum huga er það einmitt fag-mennska!! Það er líka gott að vera búin að átta sig á því að lífið er ein stór sveifla. Ekkert er eilíft og verkefni okkar flestra ganga út á að takast á við hversdagsleikann. Sá sem á erfitt með mánudaga og soðin fisk getur auðveldlega lent í að búa til ákveðið neyslumunstur til að forðast að takast á við hversdagsleikann. Þegar við þróum með okkur ákveðin neyslumunstur erum við oft að forða okkur frá tengslum – því þau þarfnast meira af okkur. En það er ekki endilega auðvelt að gangast við sjálfum sér – við þurfum að æfa okkur. Ég kalla þetta kjarkæfingar þar sem við þurfum að vera hugrökk og leita út á við. Þegar við erum ósátt við okkur sjálf, upplifum við gjarnan skömm og langar mest að loka okkur af því það hefur örugglega ENGIN annar upplifað þetta. En við eigum einmitt frekar að virða ófullkomleika okkar með því að deila með öðrum það sem við erum að upplifa. En við deilum ekki með hverjum sem er - við deilum með þeim sem hefur unnið sér réttin til að heyra það sem við höfum að segja - einhver sem elskar okkur eins og við erum og einmitt af því að við erum varnarlaus á stundum. Skömmin þrífst á leyndinni sem umlykur hana - um leið og við tjáum okkur um hana minnkar hún. Við þurfum að minna okkur á að við erum jafn veik og leyndarmálin okkar segja til um. Rannsóknir hafa sýnt fram á að fólk sem verður fyrir áföllum í lífinu (sérstaklega þeir sem verða fyrir kynferðislegu ofbeldi) og deila ekki reynslu sinni - eiga á hættu að leyndin geti orsakað meiri skaða en áfallið sjálft. Við höfum oft orðið vitni af því hvernig fólk talar um að þungu fargi er af því létt við það að tala um erfiða atburði. Það er mikið frelsi fólgið í því að fara frá  - hvað mun fólk hugsa - yfir í - ég er bara í lagi eins og ég er. Hvet þig taka þessa ferð á hendur og ef þú ert lagður af stað að halda ótrauður áfram. Maðurinn hefur ekki efni á að dæma og mundu að sá sem dæmir aðra mest er dómharðastur á sjálfan sig. Sáttin við sjálfan sig er svo mikilvægt skref – og þá ekki sátt við annað eintak en þú ert í dag – heldur nákvæmlega eins og þú ert – með kostum þínum og göllum. Eigið yndislegan dag - og þrátt fyrir leiðindar veður hér fyrir norðan þessa dagana þá hafa góðu dagarnir í vetur verið það margir að það vegur upp á móti . Þannig skiptist þetta á og allt er eins og það á að vera Kærleikskveðja! Anna Lóa